Katrín til Men&Mice

Katrín M. Guðjónsdóttir, nýr sviðsstjóri markaðsmála hjá Men&Mice.
Katrín M. Guðjónsdóttir, nýr sviðsstjóri markaðsmála hjá Men&Mice. Ljósmynd/Aðsend

Katrín M. Guðjónsdóttir hefur verið ráðin sem nýr sviðsstjóri markaðsmála hjá Men&Mice. Um er að ræða nýja stöðu en félagið hyggur á markaðsdrifna sókn erlendis.

Katrín er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands ásamt BA í markaðsfræði og grafískri hönnun. Katrín hefur um 15 ára reynslu í markaðsmálum, vörumerkjastjórnun og viðskiptaþróun að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu.

Áður starfaði Katrín sem framkvæmdastjóri markaðssviðs ALVA og sem markaðsstjóri olíufélaganna, Skeljungs og N1. Hún var markaðsstjóri hjá Innnes auk þess að starfa að markaðsmálum fyrir Símann. Katrín tók þátt í undirbúningi beggja olíufélaganna fyrir skráningu í kauphöll, og vann að mörkunarvinnu og heildarstefnumótun fyrir þau félög sem hún hefur starfað hjá. Katrín situr í stjórn Ímarks og er stjórnarformaður hjá Manino.

Fram kemur að hlutverk Katrínar verði að byggja upp nýtt markaðsteymi frá grunni, sækja aukna markaðshlutdeild beggja vegna Atlantshafsins og auka vörumerkjavirði almennt í alþjóðlegu umhverfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK