Gunnar Zoëga nýr framkvæmdastjóri notendalausna Origo

Gunnar Zoëga er nýr framkvæmdastjóri notendalausna Origo og hefur sagt …
Gunnar Zoëga er nýr framkvæmdastjóri notendalausna Origo og hefur sagt sig úr stjórn félagsins. Ljósmynd/Aðsend

Gunnar Zoëga hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri notendalausna hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo. Jafnhliða hefur Gunnar tilkynnt úrsögn sína sem varamaður úr stjórn Origo. Emil Einarsson, sem hefur starfað sem framkvæmdastjóri notendalausna, verður forstöðumaður viðskiptatengsla hjá Origo. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Origo.

„Gunnar var framkvæmdastjóri hjá Origo um árabil en hefur undanfarið ár setið sem varamaður í stjórn Origo. Hann þekkir vel til okkar atvinnugreinar og er öllum hnútum kunnugur í starfsemi Origo. Það er afar ánægjulegt að fá að njóta krafta Gunnars sem stjórnanda hjá Origo á ný,“ segir Finnur Oddsson forstjóri Origo í tilkynningunni.

Notendalausnir Origo bjóða upp á ýmiss konar notendabúnað, svo sem einmenningstölvur (PC) og hljóð- og myndlausnir til fyrirtækja og endursöluaðila. Þá bjóða notendalausnir viðskiptavinum upp á afgreiðslukerfi, prentlausnir og hraðbankakerfi.

„Viðskiptatengsl fá útvíkkað hlutverk og munu leggja áherslu á sérfræðiráðgjöf í upplýsingatækni gagnvart stærri viðskiptavinum, efla tengsl við þá, samræma sölustarf þvert á Origo og bjóða viðskiptavinum virðisaukandi lausnir sem auka hagkvæmni í rekstri,“ segir Finnur einnig og bætir við:

„Emil Einarsson hefur áralanga reynslu í sölustarfi og býr yfir mikilli þekkingu á upplýsingatæknirekstri fyrirtækja. Við bindum því miklar vonir við að með starfi viðskiptatengsla muni þjónusta við viðskiptavini okkar í síbreytilegum heimi upplýsingatækni eflast enn frekar.“

Í framkvæmdastjórn Origo sitja, auk forstjóra, Dröfn Guðmundsdóttir, Gunnar Petersen, Gunnar Zoëga, Hákon Sigurhansson, Ingimar Bjarnason og Örn Alfreðsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK