Gengi hlutabréfa Eimskips heldur áfram að lækka í dag og hefur lækkað um 2,4% það sem af er degi í um 122 milljóna króna viðskiptum. Bréf félagsins féllu einnig í gær og höfðu fallið um 4,6% við lokun markaða.
Ekki liggur fyrir hver skýring falls bréfanna er, en meðal stærstu hluthafa Eimskips er útgerðarfélagið Samherji sem mikið hefur verið fjallað um í fjölmiðlum síðustu daga.
Baldvin Þorsteinsson, sonur Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, sem ákvað að stíga til hliðar í dag, er stjórnarformaður Eimskips. Þá er Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, náskyldur þeim Baldvini og Þorsteini.