S&P staðfestir A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs

S&P reiknar með lítilsháttar samdrætti á yfirstandandi ári vegna samdráttar …
S&P reiknar með lítilsháttar samdrætti á yfirstandandi ári vegna samdráttar í komum ferðamanna til landsins, en telur að hagvöxtur taki við sér á ný frá og með 2020. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur staðfest A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands með stöðugum horfum. Frá þessu er greint í frétt á vef Stjórnarráðsins.

S&P reiknar með lítilsháttar samdrætti á yfirstandandi ári vegna samdráttar í komum ferðamanna til landsins, en telur að hagvöxtur taki við sér á ný frá og með 2020. Er viðnámsþróttur hagkerfisins bæði á sviði ríkisfjármála sem og í ytri stöðu þjóðarbúsins talinn vera traustur.

„Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs endurspeglar háa landsframleiðslu á mann, stöðuga stofnanaumgjörð og skilvirka stefnumótun. Einkunnin tekur einnig mið af sterkri stöðu ríkisfjármála eftir verulega niðurgreiðslu skulda á undanförnum árum og takmörkuðum sveigjanleika peningastefnunnar, sem þó er tekið fram að hafi aukist eftir losun fjármagnshafta,“ að því er segir í fréttinni.

Stöðugar horfur eru þá sagðar endurspegla þá skoðun matsfyrirtækisins að svigrúm í ríkisfjármálum og erlendri stöðu þjóðarbúsins vegi á móti áhættu vegna sveiflna í þjóðarbúskapnum og hugsanlega meiri samdrætti í ferðaþjónustu en búist sé við.

Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs geti hækkað styrkist staða ríkisfjármála og ytri staða þjóðarbúsins markvert umfram væntingar matsfyrirtækisins. Hún geti einnig lækkað komi fram merki um aukinn greiðslujafnaðarþrýsting eða að fjármálastöðugleika sé ógnað á næstu tveimur árum.

Dæmi um slíkt gætu verið hafi samdráttur í ferðaþjónustu víðtækari efnahagsáhrif en reiknað er með, með tilheyrandi þrýstingi á greiðslujöfnuð og fjármálakerfið, þ.m.t. á útlánastarfsemi lífeyrissjóða.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK