Haukur C. Benediktsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra fjármálastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands, en þetta kemur fram í tilkynningu á vef Seðlabankans.
Þar segir að Haukur hafi komið fyrst til starfa í Seðlabankanum árið 2001 og verið til ársins 2006. Hann var síðan ráðinn aftur til bankans í janúar 2009.
Hann sinnti starfi framkvæmdastjóra Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. frá janúar 2013 allt þar til félagið var lagt niður í febrúar 2019.
Haukur hefur jafnframt sinnt ýmsum stjórnarstörfum í tengslum við vinnu sína, auk þess að sinna kennslu við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Haukur er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í fjármálum og hagfræði frá London School of Economics.