Breytingar á yfirstjórn Sýnar

Breytingar á yfirstjórn Sýnar voru kynntar í dag.
Breytingar á yfirstjórn Sýnar voru kynntar í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Yngvi Halldórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Sýnar og hefur því sagt sig úr stjórn félagsins. Samhliða þessu hefur Þorvarður Sveinsson rekstrarstjóri látið af störfum hjá fyrirtækinu. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Þar kemur fram að skipuriti félagsins hafi samhliða verið breytt og muni verkefni tengd ferlaumbótum og hugbúnaðargerð færast undir rekstrarsvið.

Í tilkynningunni er haft eftir Heiðari Guðjónssyni, forstjóra Sýnar, að með þessum breytingum verði skerpt á rekstri, en ekki síður á stafrænni framþróun innan fyrirtækisins.

Yngvi hefur reynslu af stjórnun og rekstri á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Hann starfaði frá byrjun árs 2018 sem meðeigandi hjá Alfa framtaki sem rekur framtakssjóðinn Umbreytingu. Frá árinu 2009 starfaði hann hjá Össuri hf., síðast sem framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs, verkefnastofu og ferlaumbótasviðs. Þar áður starfaði hann sem ráðgjafi og verkefnastjóri í innleiðingum viðskiptahugbúnaðar og sem sjóðsjóri erlendra hlutabréfa hjá Landsbankanum. Yngvi mun hefja störf í byrjun janúar og tekur þá jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins. 

Óli Rúnar Jónsson sem verið hefur varamaður í stjórn Sýnar kemur inn sem aðalmaður við brotthvarf Yngva Halldórssonar úr stjórn.  Óli Rúnar er vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni og hefur setið í markaðsnefnd stjórnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK