Ganga frá 4,3 milljarða fjármögnun

Icelandair hefur fengið 4,3 milljarða króna að láni frá bandaríska …
Icelandair hefur fengið 4,3 milljarða króna að láni frá bandaríska bankanum CIT Bank til fimm ára. mbl.is/Eggert

Icelandair hefur fengið 4,3 milljarða króna að láni frá bandaríska bankanum CIT Bank til fimm ára. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá flugfélaginu, en þar segir að um sé að ræða endurfjármögnun í kjölfar uppgreiðslu skuldabréfaflokks félagsins fyrr á þessu ári.

Í tilkynningu félagsins er haft eftir Evu Sóleyju Guðbjörnsdóttur, framkvæmdastjóra fjármálasviðs, að fjármögnunin renni „enn styrkari stoðum undir góða fjárhagsstöðu Icelandair Group“.

„Það er ánægjulegt að fá svo reyndan fjármögnunaraðila að borðinu sem deilir trú okkar á framtíðarhorfum félagsins,“ er haft eftir Evu Sóleyju.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK