Aðalheiður í nýtt starf hjá OR

Aðalheiður Sigurðardóttir stýrir verkefnastofu OR.
Aðalheiður Sigurðardóttir stýrir verkefnastofu OR.

Aðalheiður Sigurðardóttir hefur verið ráðin í nýtt starf forstöðumanns verkefnastofu hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Hlutverk hennar og samstarfsfólks verður að veita faglega forystu um verkefnamenningu hjá Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélögunum; Veitum, Orku náttúrunnar og Gagnaveitu Reykjavíkur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Aðalheiður er viðskiptafræðingur með meistarapróf í verkefnastjórnun (MPM) og frekara nám í þeim fræðum frá Stanford Center for Professional Development. Hún hefur langa reynslu af verkefnastjórn í íslensku atvinnulífi. Frá 2011 starfaði hún sem verkefnisstjóri hjá Össuri og leiddi alþjóðlega verkefnastofu Össurar frá árinu 2016. Þá hefur Aðalheiður sinnt stundakennslu í verkefnastjórnun á meistarastigi meðfram vinnu síðustu ár.

Stofnun verkefnastofu hjá OR er liður í því að innleiða aðferðir verkefnisstjórnunar þvert á alla starfsemi OR-samstæðunnar. Stýring einstakra verkefna verður hér eftir sem hingað til á ábyrgð og hendi sviða og dótturfélaga innan samstæðunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK