56% íslenskra fyrirtækja nýjungagjörn

Ljósmynd/Hagstofa Íslands

Vel yfir helmingur íslenskra fyrirtækja, eða 56%, settu nýjungar á markað á árunum 2016-2018, innleiddu nýjungar í starfsemi sinni eða unnu að nýjungum sem ekki voru settar á markað á umræddu tímabili samkvæmt tilkynningu frá Hagstofunni.

„Fyrirtæki sem settu nýja eða merkjanlega breytta vöru eða þjónustu á markað voru 29% af heildinni, þar af 82% með vörur og 72% með þjónustu. Á árunum 2014-2016 átti það sama við um 33% fyrirtækja, þar af 78% með vörur og 55% með þjónustu. Munur á milli tímabila kemur þar með helst fram í því að nýjungar tengdar vörum eru að dragast saman en að nýjungar tengdar þjónustu eru að aukast. Hér skal þó hafa í huga að skilin á milli vöru og þjónustu eru að mestu leyti háð túlkun svarenda.“

Enn fremur segir að fyrir utan það að hafa sett nýja eða merkjanlega breytta vöru eða þjónustu á markað, hafi fyrirtæki talist vera nýjungagjörn ef merkjanlegar breytingar voru innleiddar í starfsemi þeirra, en það hafi átt við um 44% af heildinni. Fyrirtæki hafi einnig talist nýjungagjörn ef unnið var að þróun nýjunga á þjónustu eða vörum á tímabilinu án þess að þær færu á markað sem átt hafi við um 40% fyrirtækja.

Þá kemur fram að tölurnar séu byggðar á alþjóðlegri mælingu, en niðurstöður fyrir Evrópusambandsríkin og Evrópska efnahagssvæðið (EES) verði ekki birtar fyrr en síðar á árinu. Af nágrannalöndum Íslands hafi niðurstöður verið birtar í Noregi og Svíþjóð, en í Noregi eru 61% fyrirtækja nýjungagjörn og 55% í Svíþjóð.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK