Novator fær tugi milljarða í arð

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björgólfsson. mbl.is/RAX

Novator, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, fær 42 milljarða í tengslum við arðgreiðslur frá fjarskiptafélaginu WOM í Chile og sölu hlutafjár í pólska fjarskiptafélaginu Play. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag.

Þar kemur fram að Novator er að koma á fót fjarskiptafélagi í Kólumbíu. Novator vann útboð í desember um úthlutun á vissum tíðnisviðum á farsímaneti í Kólumbíu. Novator greiðir 257 milljónir dollara, sem svarar til 32 milljarða króna, og þarf að sjá fyrir fjarskiptasambandi á 674 stöðum í landinu, sem á að mynda grunn að stofnun félagsins. 

WOM gekk frá fjármögnun á 250 milljóna dollara, um 30 milljarða króna, arðgreiðslu til Novator í desember. Þá seldi Novator ríflega 4% hlut í pólska fjarskiptafélaginu Play fyrir um 12 milljarða króna í september.

Sjá nánar í Viðskiptablaðinu

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK