Allar helstu hlutabréfavísitölur Evrópu og Asíu hafa lækkað mikið vegna hræðslu fjárfesta um áhrif kórónaveirunnar. Umrædd veira veldur alvarlegri sýkingu í lungum og eru yfir 80 manns látnir og hátt í þrjú þúsund sýktir.
Í Tókýó lækkaði Nikkei-vísitalan um rúm 2% í dag og í London hefur FTSE 100-vísitalan lækkað um 1,6%.
DAX 30-vísitalan hefur lækkað um 1,7% í Frankfurt og CAC 40-vísitalan hefur lækkað um 1,6% í París.
Sérfræðingur hjá Ava Trade, Naeem Aslam, segir að fjárfestar í Evrópu hafi mikla áhyggjur af fjölda þeirra sem eru látnir og hversu margir séu sýktir af veirunni.