Avia Solutions Group (ASG) og BB Holding ehf. hafa gert með sér samning um kaup og sölu á öllu hlutafé í Bláfugli ehf. (Blubird Nordic). Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda og Samgöngustofu og kaupverð er trúnaðarmál.
„Við munum leggja metnað í að stækka og styrkja Bláfugl á komandi mánuðum,“ er haft eftir Gedimins Ziemelis, stofnanda og stjórnarformanni ASG, í tilkynningu.
„Með þessari fjárfestingu erum við komin í rekstur venjulegra fraktflugvéla. Við erum nú þegar eitt stærsta blautleigufyrirtækið í Evrópu og vildum styrkja okkur í fraktflutningum. Í dag erum við í ASG með 7 flugrekstrarleyfi (e. AOC) í mörgum löndum og við hyggjumst ná fram samlegð með kaupum á Bluebird, meðal annars í nýtingu mannafla, viðhaldi og leigukostnaði flugvéla.“
Bláfugl starfar undir hjáheitinu Bluebird Nordic. Félagið var stofnað árið 1999 og hóf flugstarfsemi árið 2001 með íslenskt flugrekstrarleyfi. Félagið hefur verið með allt að 8 B737-fraktflugvélar í rekstri.
Bluebird Nordic starfar einkum á sk. blautleigumarkaði (e. Wet Lease) erlendis og flýgur þá fyrir önnur félög, s.s. DHL, UPS og ASL/FedEx og fleiri. Þá starfar Bláfugl/Bluebird Nordic einnig á fraktmarkaði til og frá Íslandi með áframtengingar um allan heim einkum með UPS, Emirates og Aer Lingus.
Avia Solutions Group er stærsta fyrirtæki Mið- og Austur Evrópu í flugtengdri þjónustu. ASG er með um 90 skrifstofur og starfsstöðvar í um 50 löndum. Hjá félaginu og dótturfyrirtækjum starfa um 5.000 manns, tekjur 2019 námu um 1,5 ma € og starfið er á flestum sviðum flugtengdrar starfsemi.