Nýir starfsmenn mæta auknum umsvifum

Ragna Sæmundsdóttir, Hafsteinn Alexandersson, Hrund Einarsdóttir og Björn Daníel Svavarsson.
Ragna Sæmundsdóttir, Hafsteinn Alexandersson, Hrund Einarsdóttir og Björn Daníel Svavarsson.

Hvíta húsið hefur ráðið til sín fjóra nýja starfsmenn til að mæta auknum umsvifum og verkefnum hjá stofunni, en þeir eru Ragna Sæmundsdóttir, Björn Daníel Svavarsson, Hafsteinn Alexandersson og Hrund Einarsdóttir. 

Markmiðið með stækkuninni er að efla þjónustu við viðskiptavini með aukinni ráðgjöf hvað varðar markaðsmál, birtingar og hönnun, að því er fram kemur í tilkynningu frá Hvíta húsinu.

„Við erum markvisst að finna leiðir til að mæta betur þörfum viðskiptavina okkar á tímum mikilla umbreytinga á auglýsingamarkaði. Við erum að fá til okkar öfluga liðsmenn til að mæta þessum þörfum en markmiðið okkar er að sýna aukið frumkvæði og nýta tækifærin betur fyrir okkar viðskiptavini. Við erum gríðarlega stolt að fá til okkar þessa reynslubolta til Hvíta hússins,“ segir Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Hvíta hússins, í tilkynningunni. 

Ragna Sæmundsdóttir sinnir alhliða birtingaráðgjöf og umsjón með birtingum á samskiptasviði Hvíta hússins. Ragna er með BS-próf í sálfræði og fjölmiðlafræði. Ragna hefur starfað á auglýsingamarkaði um árabil og hefur yfir tuttugu ára reynslu sem birtingaráðgjafi. Hún starfaði til fjölda ára hjá Íslensku auglýsingastofunni og áður hjá Góðu fólki.

Björn Daníel Svavarsson starfar sem þrívíddar-, hreyfihönnuður og teiknari hjá Hvíta húsinu. Hann hefur starfað á því sviði í rúman áratug. Björn lærði kvikmyndaförðun og brellugerð í Toronto og hefur undanfarin ár starfað við auglýsingagerð. Eftir nám hefur hann starfað hjá auglýsingastofunum Miðstræti, Fíton og Pipar. 

Hafsteinn Alexandersson er grafískur hönnuður hjá Hvíta húsinu. Hann er lærður prentsmiður og grafískur miðlari frá Iðnskólanum í Reykjavík. Hann starfaði hjá Prentsmiðjunni Odda um árabil og síðar sem grafískur miðlari hjá íslensku auglýsingastofunni.

Hrund Einarsdóttir hefur hafið störf sem viðskiptastjóri hjá Hvíta húsinu. Hrund er með meistaragráðu í markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Áður en hún hóf störf hjá Hvíta húsinu starfaði hún sem verkefnastjóri hjá Tulipop. 

 

Efnisorð: 4301696379
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK