Bankar taki virkan þátt í aðgerðum stjórnvalda

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Ómar Óskarsson

Fjármálaeftirlits-, fjármálastöðugleika- og peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hafa sent frá sér yfirlýsingar í kjölfar nýlegra funda nefndanna vegna kórónuveirunnar.

Í yfirlýsingu fjármálaeftirlitsnefndar er lögð áhersla á að eftirlitsskyldir aðilar annist viðskipti með hagsmuni viðskiptavina og trúverðugleika fjármálamarkaðar að leiðarljósi. Lögð er áhersla á að þeir haldi vöku sinni gagnvart peningaþvætti og mögulegum markaðssvikum og að bankar og aðrar lánastofnanir taki virkan þátt í aðgerðum stjórnvalda með lánum til viðskiptavina og endurskipulagningu lífvænlegra fyrirtækja, að því er segir í tilkynningu frá Seðlabankanum.

Arðgreiðslum verði stillt í hóf

Bent er á að grundvallarregla varúðar og reikningsskila er að áhætta sé rétt metin í efnahag fyrirtækja á fjármálamarkaði, bæði til skemmri og lengri tíma. Í yfirlýsingu fjármálaeftirlitsnefndar er lögð áhersla á að arðgreiðslum og öðrum útgreiðslum eigin fjár verði stillt í hóf og minnt á að Fjármálaeftirlitið geti takmarkað slíkar útgreiðslur að öllu leyti við tiltekin skilyrði.

Eiginfjáraukar haldast óbreyttir

Í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar kemur m.a. fram að eiginfjáraukar vegna kerfisáhættu (3%) og kerfislegs mikilvægis (2%) haldast óbreyttir. Endurmat á kerfislega mikilvægum fjármálafyrirtækjum staðfesti kerfislegt mikilvægi Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans.

Þá telur nefndin rétt að setja á stofn sérstaka tímabundna lánafyrirgreiðslu í formi veðlána þar sem hæfi veða verður tímabundið útvíkkað. Lausafjárstaða fjármálafyrirtækja er traust en vegna óvissu um framvinduna telur nefndin mikilvægt að Seðlabankinn hafi til reiðu slíkt úrræði, að því er kemur fram í tilkynningunni.

Í yfirlýsingu peningastefnunefndar er tekið undir með fjármálastöðugleikanefnd að Seðlabankinn skuli setja á stofn sérstaka tímabundna lánafyrirgreiðslu í formi veðlána og að veðlisti bankans verði útvíkkaður tímabundið.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK