Ríkið slær 76 milljarða lán

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ekki tjáð sig um …
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ekki tjáð sig um skuldabréfaútgáfuna enn sem komið er. mbl.is/Hari

Ríkissjóður hefur gefið út skuldabréf upp á 500 milljónir evra. Líkt og greint var frá í ViðskiptaMogganum í morgun fékk ríkið fjármálafyrirtækin JP Morgan, Citi og Morgan Stanley til þess að annast útgáfuna og sölu bréfanna. Voru kynningarfundir haldnir í gær og fulltrúar fjármála- og efnahagsráðuneytisins voru sömuleiðis til viðtals við áhugasama fjárfesta.

Mikil eftirspurn reyndist vera eftir bréfunum og var 2,7 milljarðar evra þegar uppi var staðið eða ríflega fimmföld. Í upplýsingum varðandi útboðið var tilgreint að kjörin sem yrðu á bréfunum myndu ráðast af spurn eftir þeim.

Niðurstaða útboðsins var sú að skuldabréfin sem eru á gjalddaga 3. júní 2026 bera 90 punkta álag á millibankavexti (e. mid swaps). Í fyrra réðst íslenska ríkið í áþekka útgáfu með gjalddaga 2024 og báru þau bréf 28 punkta álag.

Þegar ViðskiptaMogginn leitaði upplýsinga hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu í gær var svar upplýsingafulltrúa þess að ráðuneytið myndi ekki tjá sig að sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK