Arion banki lækkar vexti

Höfuðstöðvar Arion banka.
Höfuðstöðvar Arion banka. mbl.is/Kristinn Magnússon

Í kjölfar nýlegrar stýrivaxtalækkunar Seðlabanka Íslands munu inn- og útlánavextir Arion banka breytast 1. júní.

Vaxtabreytingarnar fela í sér umtalsvert meiri lækkun á vöxtum útlána bankans en innlánum, viðskiptavinum til hagsbóta, að því er kemur fram í tilkynningu.

Breytilegir óverðtryggðir íbúðalánavextir lækka um 0,50% og hafa þá lækkað um 3,06% frá byrjun árs 2019 og hafa óverðtryggðir breytilegir vextir Arion banka lækkað mest á markaði.

„Fjármögnun banka er fjölbreytt og samanstendur t.d. af innlánum viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlendri skuldabréfaútgáfu og eiginfjárgerningum. Fjármögnunin fylgir því ekki nema að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans og speglast vaxtaákvarðanir Seðlabankans því ekki með beinum hætti í vaxtakjörum banka. Arion banki hefur aftur á móti lagt sig fram um að skila vaxtaákvörðunum Seðlabankans sem best til viðskiptavina sinna og var að auki fyrstur banka til að lækka vexti vegna lækkunar bankaskatts,“ segir í tilkynningunni.

Helstu breytingar sem taka gildi 1. júní eru eftirfarandi:

Óverðtryggð íbúðalán

  • Óverðtryggðir breytilegir vextir lækka um 0,50% og verða 3,54%
  • Fastir 5 ára vextir lækka um 0,60% og verða 4,49%

Verðtryggð íbúðalán

  • Verðtryggðir breytilegir vextir lækka um 0,30% og verða 2,74%
  • Fastir 5 ára vextir lækka um 0,10% og verða 2,54%

Bílalán

  • Vextir bílalána lækka um allt að 0,60%

Kjörvextir

  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir lækka um 0,40%
  • Almennir verðtryggðir kjörvextir lækka um 0,20%

Annað

  • Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga lækka um allt að 0,75%

Innlán

  • Breytilegir innlánavextir bankans munu í mörgum tilfellum haldast óbreyttir þrátt fyrir stýrivaxtalækkun en þó munu vextir nokkurra innlánareikninga lækka um 0,05% - 0,75%
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK