60 milljóna fjárfesting

Fyrsta dósin sem kom af nýrri áfyllingarvél hjá Kalda.
Fyrsta dósin sem kom af nýrri áfyllingarvél hjá Kalda. Ljósmynd/Aðsend

„Við vorum full af bjartsýni þegar við réðumst í þessa fjárfestingu og erum það reyndar enn. Því er að vísu ekki að neita að okkur brá mikið þegar það varð 60% tekjufall í Covid,“ segir Agnes Anna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bruggsmiðjunnar Kalda á Árskógssandi.

Fyrirtækið tók á dögunum í notkun nýja áfyllingarlínu fyrir bjór í dósum. Fram til þessa hefur Kaldi aðeins framleitt bjór í flöskum. Áfyllingarlínan var keypt frá Ítalíu og kostaði 60 milljónir króna.

„Við gerðum eins og við höfum gert með annan búnað hér, við kaupum vandaðan búnað. Ég var reyndar búin að segja það margoft að Kaldi færi aldrei í dós en það er í lagi að skipta um skoðun. Markaðurinn kallaði eftir þessu.“

Fyrstu dósirnar eru komnar í valdar Vínbúðir að sögn Agnesar. Er þar um að ræða Sumar Kalda, sem verður á sérstöku tilboðsverði í tilefni þessa áfanga.

Agnes segir kaup á dósalínu hafi verið í bígerð síðustu tvö ár. Ákveðið hafi verið að kýla á kaupin síðasta haust og í vor var von á sérfræðingum frá Ítalíu til að setja hana upp. Sú heimsókn var afþökkuð í kórónuveirufaraldrinum.

„Strákarnir mínir settu hana bara saman sjálfir og það gekk mjög vel. Sumarbjórinn bragðast mjög vel úr dósinni,“ segir Agnes.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK