Helga Valfells valin viðskiptafræðingur ársins

Telma Eir Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Félags viðskipta og hagfræðinga og Helga …
Telma Eir Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Félags viðskipta og hagfræðinga og Helga Valfells framkvæmdastjóri og stofnandi Crowberry Capital. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Helga Valfells hefur verið valin viðskiptafræðingur ársins 2020 af Félagi viðskipta- og hagfræðinga. Verðlaunin hafa verið veitt árlega síðan árið 2000.

„Helga Valfells hefur verið leiðandi í nýsköpunarheiminum á Íslandi um þó nokkurt skeið. Áður en Helga fór að láta til sín taka á Íslandi lauk hún BA gráðu í hagfræði og enskum bókmenntum við Harvard University og MBA gráðu við London Business School. Helga sinnti ýmsum störfum t.d. hjá Estée Lauder, Merrill Lynch og sem aðstoðarmaður viðskiptaráðherra áður en hún tók við stöðu framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs árið 2010. Hún stýrði sjóðnum þangað til hún og meðstofnendur hennar, Hekla Arnardóttir og Jenný Ruth Hrafnsdóttir, stofnuðu Crowberry Capital.

Crowberry Capital hefur starfað í rúmlega þrjú ár og náð eftirtektaverðum árangri. Á þessum tíma hefur sjóðurinn fjárfest í 12 fyrirtækjum og af þeim hafa 11 fyrirtæki fengið frekara fjármagn erlendis frá. Til að mynda fjárfesti einn virtasti sjóður í heimi, Andreessen Horowitz, í leikjafyrirtækinu Mainframe sem er í eignasafni Crowberry. Félagi viðskipta- og hagfræðinga er mikil ánægja að verðlauna Helgu fyrir hennar frábæru störf. Bæði vill félagið varpa ljósi á þann árangur sem Helga hefur nú þegar náð en einnig hvetja hana áfram í sínum störfum sem hafa eflaust sjaldan verið mikilvægri,“ segir í mati dómnefndar.

„Það er mikill heiður að hljóta þessi verðlaun og deili ég þeim að sjálfsögðu með meðstofnendum mínum í Crowberry Capital þeim Heklu Arnardóttur og Jennýju Ruth Hrafnsdóttur. Það er jafnframt ánægjulegt að sjá FVH horfa til íslenskra vísisjóða og fjárfestingar í nýsköpun sem mikilvægasta þáttinn í að byggja upp framtíð íslensks atvinnulífs. Það eru forréttindi að fá að vinna í íslensku nýsköpunarumhverfi og að starfa með fjöldanum öllum af skapandi og vel gerðum frumkvöðlum. Jafnframt hefur sérhver fjárfesting í nýsköpun mikil áhrif, því fjárfesting í nýsköpum er fjárfesting í atvinnusköpun, hagvexti og framförum í tækni og vísindum,“ segir Helga Valfells í fréttatilkynningu frá FVH.

Í dómnefnd sátu Telma Eir Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri FVH ásamt stjórn FVH en hana skipa Herdís Helga Arnalds formaður, Lilja Gylfadóttir varaformaður, Brynja Jónbjarnardóttir, Hálfdán Steinþórsson, Kristjana Sunna Aradóttir, Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, Lára Hrafnsdóttir, Tryggvi Másson og Þórarinn Hjálmarsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK