Kaupmáttur launa aldrei hærri en nú

Launavísitalan hækkaði um 3,7% milli desember og janúar samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Síðustu 12 mánuði hefur launavísitalan hækkað um 10,3%. Þetta er mesta hækkun launavísitölunnar í einum mánuði síðan í júní 2011 og mesta árshækkun frá því í október 2016. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans.

Um áramót hækkuðu laun á nær öllum vinnumarkaðnum á sama tíma. Lægstu laun innan kauptaxtakerfisins hækkuðu um 24 þúsund krónur á mánuði og hærri laun um 15.750 krónur. Töluverð hækkun launavísitölunnar í janúar kom því ekki á óvart og mögulega mun hún hækka eitthvað í febrúar vegna þessa segir í Hagsjánni.  

Kaupmáttaraukningin 5,8%

„Vísitala neysluverðs hækkaði um 4,3% milli janúarmánaða 2019 og 2020. Launavísitalan hækkaði um 10,3% á sama tímabili þannig að kaupmáttaraukningin á milli ára er áfram töluverð, eða 5,8%. Kaupmáttur launa er því áfram mikill í sögulegu samhengi, þrátt fyrir aukna verðbólgu á síðustu mánuðum. Kaupmáttarvísitala hefur haldið nokkuð vel síðustu mánuði og hefur kaupmáttur launa aldrei verið hærri en nú í janúar. 

Í kjarasamningum á opinberum markaði eru ákvæði um styttingu vinnuvikunnar um 13 mínútur á dag frá 1. janúar 2021 hjá launafólki á mánaðarlaunum í dagvinnu. Vinnutímastytting af þessu tagi er talin ígildi launabreytinga og hefur áhrif til hækkunar á launavísitölu. Vinnutímastytting vegna niðurfellingar á neysluhléum eða samþjöppun hefur  hins vegar ekki áhrif á launavísitölu þegar einungis er um að ræða breytingu á viðveru.

Áhrif styttingar vinnutíma á launavísitölu á tímabilinu frá 2019 fram til nóvember 2020 hafa verið metin um 0,8 prósentustig. Fyrsta mat Hagstofunnar á áhrifum vinnutímastyttingar í janúar 2021 á launavísitöluna er um 0,4 prósentustig, eða rúmlega 10% af breytingu vísitölunnar um áramót,“ segir í Hagsjá Landsbankans.

Laun á opinbera markaðnum hækkuðu um 9,9%

Í nóvember höfðu laun á opinbera markaðnum hækkað um 9,9% milli ára, öllu meira hjá sveitarfélögunum en ríkinu. Á sama tíma hækkuðu laun á almenna markaðnum um 6,4%. Kjarasamningar í þessari lotu voru gerðir mun seinna hjá meirihluta opinbers starfsfólks og fólu þeir í sér tvær kjarasamningshækkanir á árinu 2020, vegna ársins 2019 og 2020, og einnig hækkun 1. janúar 2021. Því var um að ræða þrjár kjarasamningshækkanir hjá þeim hópum sé horft til 12 mánaða tímabils. Þetta þýðir að laun á opinbera markaðnum hafa nú hækkað meira en á þeim almenna sé miðað við upphaf ársins 2015. 

„Atvinnuleysi jókst verulega á síðasta ári og var skráð almennt atvinnuleysi 11,6% í janúar og atvinnuleysi vegna hlutabóta 1,2%. Heildaratvinnuleysi var því 12,8% í janúar og hefur ekki verið meira í annan tíma. Þessi jákvæða launaþróun sem við sjáum nú er því ekki beint í takt við slakan vinnumarkað,“ segir enn fremur í Hagsjá Landsbankans.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK