Nýir stjórnendur hjá Krónunni

Skipulagsbreytingar hafa verið gerðar hjá Krónunni.
Skipulagsbreytingar hafa verið gerðar hjá Krónunni. Kristinn Magnússon

Skipulagsbreytingar hafa verið gerðar hjá Krónunni þar sem m.a. innkaup og vörustýring hafa verið sameinuð, þjónustusviði bætt við rekstrarsvið, umhverfismálum við markaðssvið og nýtt svið viðskiptaþróunar og umbótaverkefna stofnað. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Markmið þessara breytinga er að styrkja samkeppnisstöðu Krónunnar á matvörumarkaði með því að skerpa á innra skipulagi, auka samvinnu þvert á fyrirtækið og tryggja að Krónan uppfylli í enn ríkara mæli fyrirheit um að einfalda líf viðskiptavina sinna, þekkja þeirra væntingar og svara þeirra þörfum hvað varðar þjónustustig, vöruúrval, gæði og verðlag,“ segir í tilkynningunni.

Guðrún Aðalsteinsdóttir.
Guðrún Aðalsteinsdóttir.

Guðrún Aðalsteinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður innkaupa og vörustýringar Krónunnar. Ásta Sigríður Fjeldsted framkvæmdastjóri Krónunnar segir í tilkynningunni að með sameiningu þessa tveggja lykilsviða náist enn betri samþætting í gegnum alla virðiskeðjuna frá upphafi til enda. 

Guðrún er rekstrarverkfræðingur og hefur undanfarin ár starfað sem forstöðumaður hjá Icelandair á rekstrarsviði þar sem hún var ábyrg fyrir m.a. sölu og þjónustu í flugvélum félagsins, vöruþróun, innkaupum, birgðastýringu og framleiðslu því tengdu. Hún hefur enn fremur alþjóðlega reynslu frá Nýja-Sjálandi og Danmörku, og starfaði m.a. hjá lyfjafyrirtækinu Novo Nordisk.

„Það er mikill fengur fyrir Krónuna að fá Guðrúnu til liðs, en hún hefur starfað sem ráðgjafi hjá fyrirtækinu um nokkra mánaða skeið og kynnst starfseminni náið. Guðrún kemur með ferska sýn inn í kraftmikið fyrirtæki og reynslu sem mun nýtast okkur vel. Við hlökkum mikið til samstarfsins,“ segir Ásta í tilkynningunni. 

Sigurður Gunnar Markússon.
Sigurður Gunnar Markússon.

Sigurður Gunnar Markússon tekur við sem forstöðumaður viðskiptaþróunar og umbótaverkefna sem er nýtt svið innan Krónunnar. Sigurður Gunnar starfaði áður sem framkvæmdastjóri innkaupasviðs Krónunnar og hefur áratugareynslu af íslenskum matvörumarkaði, eins og segir í tilkynningunni. Þá segir að hann hafi gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu Krónunnar og mótun nýrra verslana. „Sigurður Gunnar mun gegna veigamiklu hlutverki í áframhaldandi þróun og uppbyggingu Krónunnar um leið og hans teymi heldur utan um umbótaverkefni og eftirfylgni þeirra þvert á fyrirtækið. Það er fagnaðarefni að fá jafn reynslumikinn mann inn í þetta lykilhlutverk hjá okkur.“

Ólafur Rúnar Þórhallsson.
Ólafur Rúnar Þórhallsson.

Ólafur Rúnar Þórhallsson tekur við sem forstöðumaður rekstrar og þjónustu, en hann hefur gegnt starfi rekstrarstjóra, sl. tvö ár. Ólafur Rúnar hefur starfað hjá Krónunni í 22 ár og hefur mikla reynslu af ólíkum störfum innan fyrirtækisins, samkvæmt tilkynningunni.

Ólafur Rúnar er með próf frá Iðnskólanum í Reykjavík, verslunarstjórapróf frá Háskólanum á Bifröst ásamt því að hafa tekið vörustjórnunarnámskeið við Háskólann í Reykjavík. „Það er mikið fagnaðarefni að fylgjast með efnilegu fólki hjá Krónunni vaxa í starfi og er Ólafur Rúnar gott dæmi um slíkt. Hann hefur gríðarlega reynslu og djúpan skilning á rekstrinum og leggur samhliða höfuðáherslu á úrvals þjónustu við okkar viðskiptavini. Við hlökkum til að sjá hann takast á við þetta nýja og spennandi svið,“ segir Ásta í tilkynningunni.

Erla María Sigurðardóttir.
Erla María Sigurðardóttir.

Erla María Sigurðardóttir tekur við sem mannauðsstjóri Krónunnar. Erla María er viðskiptafræðingur og er að ljúka meistaranámi í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. „Erla María þekkir vel til okkar starfa og starfsfólks en hún hefur unnið á mannauðssviði móðurfélags Krónunnar, Festi í um sex ár. Það er dýrmætt að fá í hóp stjórnenda Krónunnar sterka liðsmenn sem þekkja vel til okkar starfa og eru tilbúnir að taka næstu skref í vegferðinni með okkur. Við hlökkum til samstarfsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK