Tæpir átta milljarðar í tekjufallsstyrki

Tekjufallsstyrkir nýtast rekstraraðilum sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli í …
Tekjufallsstyrkir nýtast rekstraraðilum sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli í heimsfaraldrinum og er markmiðið að viðhalda atvinnustigi og efnahagsumsvifum með því að styðja þau fyrirtæki og einyrkja þar sem tekjufall er meira en 40%. mbl.is

Um 1.400 rekstraraðilar hafa fengið um 7,8 milljarða króna greidda í tekjufallsstyrki vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Tekjufallsstyrkir nýtast rekstraraðilum sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli í heimsfaraldrinum og er markmiðið að viðhalda atvinnustigi og efnahagsumsvifum með því að styðja þau fyrirtæki og einyrkja þar sem tekjufall er meira en 40%.

Þetta kemur fram á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

„Alls hafa tugir milljarða verið greiddir í fjölbreyttan stuðning í úrræðum ríkisstjórnarinnar vegna faraldursins sem eru á annan tug talsins – styrkir, lán, gjaldfrestir og annað – sem á fjórða tug rekstraraðila og tugþúsundir einstaklinga hafa nýtt sér,“ kemur fram á vef ráðuneytisins.

Þar segir enn fremur að yfirgnæfandi meirihluti fyrirtækja sem nýtti sér úrræði stjórnvalda vegna faraldursins í fyrra var með tíu launamenn eða færri. Það hafi verið um 82% þeirra sem nýttu sér úrræðin eða alls rúmlega 2.500 fyrirtæki.

Nánar má sjá um efnahagsgerðir vegna Covid-19 hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK