Inneignir og gjafakort í símann

Inneign í síma. Freyja Leópolsdóttir markaðsstjóri S4S og Pétur Þór …
Inneign í síma. Freyja Leópolsdóttir markaðsstjóri S4S og Pétur Þór Halldórsson með símana á lofti. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Viðskiptavinum verslana S4S bjóðast nú gjafakort og inneignir sem verða virk og aðgengileg á snjallsímum. Kortin eru sniðin að stýrikerfum símanna svo auðvelt er að hlaða þeim niður bæði í Android og Apple. Þá eru kortin tengd tölvukerfi S4S og þannig geta viðskiptavinir – líkt og fyrirtækið – séð hver innistæða þeirra er í rauntíma.

„Gjafakort úr plasti og inneignarnótur á pappír, sem fólk fær til dæmis við vöruskil, eru barn síns tíma. Þetta eru gögn sem fólk týnir eða gleymir auk þess sem þau renna úr gildi. Þar með glatast peningur viðskiptavina. Þarna viljum við koma betur til móts við viðskiptavini og erum því ekki með fyrningarfrest á gjafakortum og inneignarnótum. Þá verður alltaf hægt að nota gjafakortin okkar, hvort sem er afsláttur í verslunum eða ekki,“ segir Pétur Þór Halldórsson, forstjóri S4S, í samtali við Morgunblaðið.

Vildarklúbbur og áminningar

S4S ehf. er umsvifamikið verslunarfyrirtæki. Undir hatti þessu eru reknar skóbúðirnar Steinar Waage, Kaupfélagið, Ecco, Skechers og Toppskórinn, ásamt Air, sem eru sérhæfðar í íþróttavörum frá Nike. Allar þessar verslanir eru á höfuðborgarsvæðinu. Þá starfrækir fyrirtækið Ellingsen í Reykjavík og á Akureyri. Jafnframt eru í samstæðunni netverslanirnar skor.is, ellingsen.is, air.is og rafhjolasetur.is. Alls eru þetta 17 verslanir, hver á sínu sviði, en áberandi í vöruframboði samstæðunnar eru skór fyrir alla fjölskylduna, alhliða íþrótta- og útivistarfatnaður og í Ellingsen er svo fjölbreytt úrval af útivistarbúnaði, rafhjólum og ferðatækjum.

„Okkur er mikið í mun að viðskiptavinir okkar geti nýtt allar inneignir og gjafakort sem þeir eiga hjá okkur,“ segir Pétur. „Þess vegna erum við að þróa vildarklúbb sem heldur utan um vildarviðskiptavini með sértilboðum og inneignarsöfnun sem mun jafnframt vera tengt við hugbúnað í farsímum. Í nýrri verslun Steinars Waage sem opnuð verður í Smáralind í haust verður tæknin nýtt til hins ýtrasta. Til að mynda verður þetta svo að þegar viðskiptavinur í vildarklúbbi kemur inn í verslun fær hann í símann sinn áminningu um inneignina sína, hvort sem það er í gegnum gjafakort, inneignarnótu eða vildarklúbb.“

Flýtir afgreiðslu pantana á netinu

Í áðurnefndri og væntanlegri nýrri verslun Steinars Waage verða einnig höfuðstöðvar netverslunar S4S sem mun flýta allri afgreiðslu netpantana. Þá er verið að taka í gagnið nýtt birgðakerfi, en netverslanir S4S leita sjálfvirkt í 17 vörulagerum eftir ákveðnu ferli.

„Verslunarhættir breytast hratt og netsala verður æ stærri þáttur í okkar rekstri,“ segir Freyja Leópoldsdóttir, sölu- og markaðsstjóri S4S. Hún segir breyttar aðstæður vegna kórónuveirunnar hafa skapað svigrúm og gefið tilefni til endurskoðunar á ýmsum áherslum fyrirtækisins. Verið sé að uppfæra heimasíður, nýtt birgðakerfi hafi verið tekið í notkun, skerpt hafi verið á sérstöðu einstakra verslana og meiri kraftur settur í netsölu. Fyrrgreind breyting á inneignarkortunum sé sömuleiðis hluti þessara breytinga.

„S4S hefur stækkað mikið að undanförnu. Netverslanir okkar efldust mikið í fyrra, í hörðum samkomutakmörkunum. Við byggjum á góðum grunni netverslunar þegar verslanir lokuðu tímabundið en þurftum að endurskipuleggja öll markaðsmál okkar miðað við aðstæður. Við settum í fimmta gír, settum alla áherslu á netverslanir sem skilaði sér vel í söluaukningu. Velta netverslunar hjá samstæðunni næstum þrefaldaðist miðað við árið á undan og starfsfólki sem sinnir netverslun var fjölgað. Markmið okkar er að viðskiptavinir á höfuðborgarsvæðinu geti ávallt fengið pantanirnar sínar afhentar samdægurs. Með öllum þeim breytingum sem við erum búin að gera og erum að vinna að mun þessi þjónusta aukast enn frekar,“ segir Freyja enn fremur.

Með aukinni netverslun ætlast viðskipavinurinn til þess að fá vörurnar samdægurs og óskar eftir að fá þær sendar, að sögn Péturs Þórs.

Verslanir uppfærðar

„Póstbox og eða að fá vörur sendar á vinnustað eða á afgreiðslustaði nær heimili er vinsæl þjónusta, því bjóðum við upp á allmarga valkosti til að fá vörurnar afhentar. Sækja í verslun, fá sent með Póstinum, heimsent upp að dyrum eða afhent með Dropp á næsta afhendingarstað er allt í boði hjá okkur,“ segir Pétur Þór og bætir við að framtíðarsýnin sé að afhenda vörur á 2-3 klukkustundum eftir pöntun á hefðbundnum vinnutíma.

Samhliða þróun á rafrænu gjafakortunum og að koma þeim í snjalltækin hafa fleiri breytingar verið gerðar hjá S4S.

„Við erum að uppfæra allar netverslanir okkar og erum að vinna þær frá grunni. Síðurnar verða notendavænni og byggjast á nýjustu tækni en það var kominn tími til að uppfæra bæði útlit og tækni, sem og auka hraða,“ segir Pétur Þór. „Þá var Ellingsen í Reykjavík tekin í gegn í byrjun síðasta árs, Rafhjólasetrið byggt upp og endurraðað, málað og sett ný lýsing í allt rýmið. Ný verslun Ellingsen á Akureyri er einnig í vinnslu og verður opnuð á nýjum framtíðarstað í haust. Þá fórum við í breytingu á Steinari Waage í Kringlunni á dögunum.“

Selt úr kössunum

Eldgosið í Geldingadölum hefur aukið útivistaráhuga landans svo um munar og margir hafa fyrir göngu að gosinu þurft að kaupa sér útbúnað sem þarf.

„Áður en lagt hefur verið upp í gönguferðir í Geldingadali hafa margir komið við til að kaupa til dæmis gönguskó, skjólfatnað, höfuðljós, mannbrodda, stafi og fleira slíkt sem þarf. Salan að undanförnu hefur verið slík að vörur hafa verið seldar beint upp úr kössunum og margt að verða uppselt á landinu,“ segir Pétur Þór sem undirstrikar að Ellingsen sé alhliða útivistarverslun fjölskyldunnar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK