Fjórðungur stjórnarmanna eru konur

Af vef Evrópuvaktarinnar

Rúmur fjórðungur stjórnarmanna fyrirtækja, sem greiða laun og skráð eru í hlutafélagaskrá, voru konur í lok árs 2020 eða 26,5%. Í stjórnum fyrirtækja þar sem fjöldi launamanna árið 2020 var að jafnaði minni en 50 var hlutfallið 26,2% en 34,1% í stjórnum fyrirtækja með 50 launamenn eða fleiri. Til samanburðar var hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja með 50 launþega eða fleiri 15,4% árið 2008 og 9,5% árið 1999. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Árið 2010 voru sett lög þar sem kveðið var á um að þegar stjórnarmenn eru þrír í félagi þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli skuli hvort kyn eiga fulltrúa í stjórn og þegar stjórnarmenn eru fleiri en þrír í slíkum félögum skuli hlutfall hvors kyns ekki vera lægra en 40%. Þessi lög taka til almennra og opinberra hlutafélaga, einkahlutafélaga og samvinnu- og sameignarfélaga. Í tilfelli einkahlutafélaga er jafnframt tiltekið að hvort kyn skuli eiga fulltrúa í stjórn þegar stjórnarmenn eru tveir. Þessi lög tóku gildi í september árið 2013.

Hefur haldist nánast óbreytt frá 2014

Hagstofa Íslands birtir nú í fyrsta skipti tölfræði þar sem kyn stjórnarmanna er greint eftir rekstrarformi og stærð stjórnar. Ef litið er á félög með 50 launamenn eða fleiri árið 2020 var hlutfall kvenna um 40% í stjórnum þar sem stjórnarmenn voru fjórir eða fleiri, bæði fyrir almenn hlutafélög og einkahlutafélög. Í stjórnum með þrjá stjórnarmenn var hlutfallið 30,5% fyrir almenn hlutafélög og 28,1% fyrir einkahlutafélög og í einkahlutafélögum með tvo stjórnarmenn var hlutfall kvenna í stjórn 22,8%.

Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja fór hækkandi frá 2008 fram til ársins 2014 en hefur haldist nokkuð óbreytt síðan þá. Almennt má merkja að hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja hækkar með bæði stærð stjórna og félaga (talið í fjölda launamanna) og er hærra í almennum hlutafélögum en í einkahlutafélögum.

Fyrir félög sem hafa 50 eða fleiri launamenn að jafnaði er nú einnig birt greining á fjölda félaga eftir því hvort kynjahlutföll stjórna þeirra uppfylla áðurnefnda löggjöf sem tók gildi árið 2013.

„Ef litið er á fyrirtæki sem hafa 50 launamenn eða fleiri hefur þeim félögum sem hafa blandað hlutfall kynja í stjórn farið jafnt og þétt fjölgandi á síðustu 12 árum. Árið 2008 var hlutfall þeirra félaga sem höfðu að minnsta kosti einn stjórnarmann af hvoru kyni (fyrir tveggja og þriggja manna stjórnir) eða höfðu hlutfall kvenna á meðal stjórnarmanna á bilinu 40%-60% (fyrir stjórnir með fjóra eða fleiri stjórnarmenn) á bilinu 14% (einkahlutafélög með tveggja manna stjórnir) til 39% (almenn hlutafélög með þriggja manna stjórnir).

Á liðnu ári var sama hlutfall á bilinu 74% (einkahlutafélög með þrjá stjórnarmenn) til 88% (almenn hlutafélög með þrjá stjórnarmenn), mismunandi eftir rekstrarformi og stærð stjórnar. Einkahlutafélög með tveggja manna stjórnir skera sig þó úr þar sem hlutfall þeirra einkahlutafélaga sem eru með stjórnarmenn af báðum kynjum var einungis 37%,“ segir á vef Hagstofunnar.

Hægfara þróun

Hlutfall kvenna í stöðu framkvæmdastjóra hækkar lítillega á milli ára (23,4%) sem fylgir eftir hægfara aukningu allt frá 1999. Hlutfall kvenna í stöðu stjórnarformanna var 24,3% í lok árs 2020.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK