„Aldrei verið eins spenntur fyrir neinu á ævinni“

Birgir Jónsson, forstjóri Play.
Birgir Jónsson, forstjóri Play. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég hef aldrei verið eins spenntur fyrir neinu á ævinni og tækifærinu sem Play hefur til að ná árangri.“

Þetta segir Birgir Jónsson, nýráðinn forstjóri flugfélagsins Play, sem stefnir að því að hefja flug til og frá Íslandi í júní.

„Það er einhver sérstök orka sem umlykur fólkið sem vinnur nú hjá fyrirtækinu og fólkið sem hefur fjárfest í því. Ótrúlegur metnaður og hungur í árangur. Rosalegur kraftur,“ skrifar Birgir í færslu á Facebook.

Heiður að fá að leiða hópinn

„Þetta verður erfitt, flókið og hratt. En djöfull sem þetta verður gaman!! Það er gríðarlegur heiður fyrir mig að fá að leiða þennan hóp og einhvern veginn finnst mér að allt sem ég hef gert hingað til hafi verið uppbygging að þessu verkefni.“

Deilir hann um leið auglýsingu þar sem óskað er eftir umsóknum fyrir störf framkvæmdastjóra fjármálasviðs og sölu- og markaðssviðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK