Kortavelta meiri nú en í fyrra

Kortavelta Íslendinga hefur aukist innanlands.
Kortavelta Íslendinga hefur aukist innanlands. mbl.is/Hallur

Greiðslukortavelta landsmanna nam 72,2 milljörðum í mars síðastliðnum og jókst um 14% í samanburði við mars í fyrra og um 12% í samanburði við febrúar árið 2021.

Kemur þetta fram í gögnum frá rannsóknarsetri verslunarinnar, sem tekur mið af kortaveltugögnum frá færsluhirðum.

Innlend kortavelta óx um 25% en erlend kortavelta dregst enn þá mikið saman, alls 72% milli ára.

Heildargreiðslukortaveltan mælist hærri í mars 2021 heldur en í mars …
Heildargreiðslukortaveltan mælist hærri í mars 2021 heldur en í mars 2020. Ljósmynd/Rannsóknarsetur verslunarinnar

Greiðslukortavelta Íslendinga hérlendis heldur áfram að aukast og greinist 13,9 milljarðar á milli ára en á milli febrúar- og marsmánaðar þessa árs nam aukningin 7 milljörðum. 

Erlend greiðslukortavelta hérlendis nam einungis 1,9 ma. kr. í mars síðastliðinn samanborið við tæplega 7 ma. í mars 2020 (-72%), milli mánaða (feb. vs. mars) jókst veltan hins vegar um 559 milljónir króna.

Meiri velta í verslun og þjónustu nú en í fyrra

Greiðslukortavelta í verslun og þjónustu í mars nam í heildina 70,3 ma. kr. og óx um 24,6% samanborið við mars 2020 sem er auking um 13,9 ma. kr. Á milli febrúar og marsmánaðar þessa árs nam aukningin 7 ma. eða um 11%.

Velta óx í öllum stærstu vöruflokkum heildarverslunar milli ára (+9,38 ma.). Hlutfallslega mesta aukningin milli ára er í fataverslunum sem vex um 115% en í krónum talið er mesta aukningin í stórmörkuðum og dagvöruverslun sem vex um 2,5 ma. (+18%). Þá dróst tollfrjáls verslun saman um 86% en áfengisverslun óx um 47% milli ára.

Svipuð þróun átti sér stað í netverslun sem óx um alls 55% milli ára eða um 936 milljónir. Eyðsla í lyfja-, heilsu- og snyrtivöruverslunum óx hlutfallslega mest í vefverslun á milli ára, alls 82%, velta í byggingavöruverslunum vex um 59% á meðan velta óx um 47% í verslunum með heimilisbúnað.

Mest er verslað í hefðbundnum verslunum.
Mest er verslað í hefðbundnum verslunum. Ljósmynd/Rannsóknarsetur verslunarinnar
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK