Allir fríu miðarnir búnir

Play brúkar Airbus þotur.
Play brúkar Airbus þotur.

„Þetta hefur náttúrlega bara farið langt fram úr björtustu vonum,“ sagði Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play. Flugfélagið hóf sölu á flugmiðum til sjö áfangastaða í Evrópu á sjötta tímanum í dag en fyrsta flug félagsins verður 24. júní. 

Til marks um áfangann voru 1.000 fríir flugmiðar í boði sem leita þurfti að á bókunarsíðu flugfélagsins. Miðunum var dreift á mánuði og voru því nokkrar dagsetningar í hverjum mánuði þar sem miðarnir leyndust. „Miðarnir kláruðust nú frekar snemma í morgun, eftir að við sendum út póstinn,“ sagði Birgir.

Fyrsta flugið verður til London og kost­ar miðinn þangað frá 6.500 krón­um. Aðrir áfangastaðir eru Alican­te, Barcelona, Berlín, Kaup­manna­höfn, Par­ís og Teneri­fe. Flug á þá áfangastaði hefst í júlí. Til að mynda er hægt að bóka ferð til Teneri­fe 3. júlí og Berlínar 5. júlí, Alican­te 17. júlí og Barcelona 23. júlí. Par­ís verður í boði frá 18. júlí og Kaup­manna­höfn 22. júlí.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK