Kristín nýr forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins

Kristín Inga Jónsdóttir.
Kristín Inga Jónsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Kristín Inga Jónsdóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns markaðsdeildar Póstsins. Kristín hefur starfað hjá Póstinum frá árinu 2019 sem markaðssérfræðingur.

Kristín er með víðtæka reynslu af markaðsmálum en ásamt því að hafa starfað hjá Póstinum var hún áður verkefnastjóri markaðsdeildar hjá Wow air sem og sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu hjá Kynnisferðum.

Kristín hefur verið lykilmanneskja í markaðsstarfi Póstsins undanfarin tvö ár og hefur komið að öllum helstu herferðum Póstsins, þá hefur hún í öllum fyrri störfum haft mikla aðkomu að markaðsherferðum sem og efnissköpun. Kristín er með MS próf í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands ásamt BA prófi í félagsráðgjöf, að því er fyrirtækið greinir frá í pósti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK