Ráðgjafarfyrirtækið Athygli hefur ráðið Karen Kjartansdóttur til starfa.
Karen hefur fjölbreytta starfsreynslu úr íslensku atvinnulífi en síðast starfaði hún sem framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar þar sem hún hafði verið frá 2018. Þar á undan starfaði hún í fjölbreyttum verkefnum hjá ráðgjafarstofunni Aton auk þess sem hún var samskiptastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) á árunum 2013 til 2017, að því er segir í tilkynningu.
Karen hefur einnig talsverða reynslu af fjölmiðlastörfum, sem blaðamaður og pistlahöfundur á DV og á Fréttablaðinu og síðar fréttamaður og varafréttastjóri á Stöð 2. Einnig hefur Karen unnið fjölda trúnaðarstarfa fyrir félög í atvinnulífinu, meðal annars að því að efla tengsl milli atvinnulífs og menntastofnana auk þess að halda utan um skipulag á ráðstefnum og málþingum vegna málefna atvinnulífsins. Karen útskrifaðist með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2016 og er með BA-gráðu í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur þegar hafið störf.