Kristján Þór úthlutar 566,6 milljónum úr Matvælasjóði

Kristján Þór Júlíusson.
Kristján Þór Júlíusson. mbl.is/​Hari

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur úthlutað 566,6 milljónum króna úr Matvælasjóði til 64 verkefna. Hlutverk sjóðsins er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum.

Þetta er í annað sinn sem úthlutað er úr Matvælasjóði, en í ár bárust 273 umsóknir um styrki. 

Fjögur fagráð voru stjórn sjóðsins til ráðgjafar, eitt í hverjum styrkjaflokki, og skiluðu þau til stjórnar forgangsröðun verkefna eftir einkunnum ásamt umsögnum um hvert verkefni fyrir sig. Stjórn Matvælasjóðs skilaði tillögum til ráðherra hinn 3. september sl. og hefur ráðherra fallist á þær. Öllum umsækjendum mun berast svar við umsóknum sínum ásamt umsögn um verkefnin, að því er segir í tilkynningu. 

Meðal verkefna sem hljóta styrk að þessu sinni eru: 

  • Útfærsla hugmynda og prófun á fæðubótarefni úr tilteknum spírum og sykrum úr þörungum.
  • Vöruþróun á millimáli og ídýfum úr broddmjólk. 
  • Tilraun til notkunar þangsafa við vökvaræktun grænmetis.
  • Tilraunir og vöruþróun á ætum rósum.
  • Verkefni um að framleiða umhverfisvænni matvælaumbúðir.
  • Framleiðsla á hafraskyri úr íslenskum höfrum.
  • Hagkvæmnisathugun fyrir uppsetningu frostþurrkunarvers fyrir matvæli á Íslandi
  • Fullvinnsla á grjótkrabba og aukaafurðum af próteinríkum.
  • Verkefni um framleiðslu á húðvörum úr íslenskum jurtum og hliðarafurðum matvælaframleiðslu.
  • Áhrif endurnýjunar íslenska fiskiskipaflotans á kolefnisspor afurða.
  • Verkefni um hreina fiskiolíu í vesturvíking.

Nánar hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK