SI gagnrýna borgina harðlega

Reykjavíkurborg hyggst stórefla stafræna þróun á næstu árum.
Reykjavíkurborg hyggst stórefla stafræna þróun á næstu árum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins, SI, segir að samtökin gagnrýni harðlega að Reykjavíkurborg sé að byggja upp sitt eigið hugbúnaðarhús, eins og hún orðar það, en í frétt í Morgunblaðinu í gær var sagt frá því að borgin hygðist verja rúmlega tíu milljörðum í netþróun á árunum 2021 til 2023 og ráða um 60 sérfræðinga.

Sigríður Mogensen sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins
Sigríður Mogensen sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins Ljósmynd/Aðsend

Sigríður segir að það sé jákvætt að borgin sé að bæta skilvirkni í þjónustu við borgarbúa en nálgunin fari þvert á atvinnu- og innkaupastefnu Reykjavíkur, en þar sé meðal annars kveðið á um að borgin vilji vinna að vexti fjölbreytts og framsækins atvinnulífs. „Upplýsingatæknifyrirtæki hér á landi hafa alla burði til að leysa þau verkefni sem borgin hyggst nú vinna innanhúss hjá sér,“ segir Sigríður.

Hún segir að með þessu sé borgin ekki einungis að stíga harkalega inn á samkeppnismarkað heldur einnig að taka til sín og keppa við atvinnulífið um starfsfólk. „Réttast væri að fara í útboð og kaupa lausnir frá upplýsingatæknifyrirtækjum.“

Kemur á óvart

Gunnar Zoëga, framkvæmdastjóri notendalausna Origo og formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja, segir það koma sér á óvart að verkefnin séu ekki boðin út. Hann segir að borgin hefði getað farið sömu leið og ríkið gerði með verkefnið Stafrænt Ísland sem sé jafnvel umfangsmeira en það sem Reykjavíkurborg sé nú að fara út í. Þar séu öll verkefni boðin út en verkefnastjórn sjái um utanumhald.

Gunnar Zoëga formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja.
Gunnar Zoëga formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja. Ljósmynd/Hari
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK