Telma nýr framkvæmdastjóri SÍF

Telma Eir Aðalsteinsdóttir.
Telma Eir Aðalsteinsdóttir.

Telma Eir Aðalsteinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Sambands íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) og hefur hún þegar hafið störf. Telma starfar einnig sem framkvæmdastjóri Félags viðskipta- og hagfræðinga ásamt því að sinna stjórnarsetu.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá SÍF.

Telma er með MBA gráðu frá Háskóla Íslands og BA gráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst. Áður starfaði Telma meðal annars sem vörustjóri einstaklingstrygginga hjá VÍS, vörustjóri hjá Póstinum og verkefnastjóri hjá Já. Eiginmaður Telmu er Eyþór Mar Halldórsson og eiga þau einn son.

SÍF er hagsmunafélag allra nema á framhaldskólastigi og var stofnun þess liður í því að brúa bil milli bók- og iðnnáms enda eiga nemendafélög allra framhaldsskóla landsins aðild að SÍF. Hlutverk félagsins er að tryggja að ekki sé brotið á réttindum eða hagsmunum framhaldsskólanema. SÍF er aðili að OBESSU, regnhlífasamtökum hagsmunafélaga námsmanna í Evrópu, en aðildin veitir framhaldsskólanemum tækifæri á að efla tengslanet sitt, miðla reynslu og læra af öðrum í sambærilegri stöðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK