Tala niður kerfisáhættu vegna skulda Evergrande

Seðlabankastjóri Kína hefur talað niður kerfisáhættu vegna fjárhagserfiðleika risastóra fasteignaþróunarfélagsins …
Seðlabankastjóri Kína hefur talað niður kerfisáhættu vegna fjárhagserfiðleika risastóra fasteignaþróunarfélagsins Evergrande. AFP

Seðlabanki Kína hefur loksins rofið þögn sína um alvarlega skuldastöðu kínverska fasteignaþróunarfélagsins Evergrande, en það er vafið 300 milljarða dala skuldum og á yfir höfði sér gjaldþrot. Segir seðlabankinn að hægt sé að hafa stjórn á mögulegum áhrifum út á fjármálamarkaðinn vegna þessa.

Zou Lan seðlabankastjóri sagði í dag að yfirvöld væru að vinna að málum fyrirtækisins og bætti við að Evergrande hefði undanfarin ár verið illa rekið og hefði því ekki getað brugðist við breytingum á markaði. Sagði hann að félagið hefði einungis horft til stækkunar og það hefði skilað sér í fjárhagserfiðleikunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK