Hægt að póstleggja sendingar í Póstboxum

Gujón Ingi Agústsson, forstöðumaður stafrænna lausna og upplýsingatækni hjá Póstinum.
Gujón Ingi Agústsson, forstöðumaður stafrænna lausna og upplýsingatækni hjá Póstinum. Ljósmynd/Aðsend

Pósturinn kynnti í dag nýja þjónustu sem gerir viðskiptavinum kleift að póstleggja sendingar beint úr Póstboxi. Þannig getur fólk sparað sér ferð á pósthús en þjónustan ber heitið Skrá og senda. 

„Nýja Skrá og Senda þjónustan opnar á enn fleiri afhendingastaði sendinga fyrir viðskiptavini Póstsins auk þess sem langflest Póstbox eru opin allan sólarhringinn. Viðskiptavinir geta því póstlagt sendingar þegar og þar sem þeim hentar, sama hvort um er að ræða jólagjafir til annarra landshluta eða vöruskil til netverslana,“ er haft eftir Guðjóni Inga Ágústssyni, forstöðumanni starfrænna lausna og upplýsingatækni hjá Póstinum í tilkynningu. 

í boði í öllum póstboxum landsins

Þjónustan er þegar komin í gagnið í Póstboxum á Selfossi, Þorlákshöfn og í Hraunbæ í Reykjavík. Þjónustan verður aðgengileg í öllum Póstboxum landsins frá og með byrjun nóvember. 

„Til þess að nýta sér Skrá og Senda þjónustuna þurfa viðskiptavinir að vera innskráðir á mínar síður á vef Póstsins og skrá sendinguna áður en hægt er að póstleggja hana í Póstbox. Viðskiptavinir þurfa jafnframt að vera með kreditkort á skrá á mínum síðum Póstsins og heimila sjálfvirkar greiðslur. Leiðir skráningarferlið viðskiptavininn áfram og því ættu allir að geta nýtt sér þessa þjónustu. Í byrjun nóvember munu viðskiptavinir einnig geta skráð sendingar í appi Póstsins sem eykur enn á þægindin,“ segir í tilkynningu frá Póstinum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK