Farþegafjöldi hefur aukist um 50% milli ára

Farþegafjöldi Icelandair á árinu hefur aukist um tæp 50% frá …
Farþegafjöldi Icelandair á árinu hefur aukist um tæp 50% frá síðasta ári. mbl.is/Sigurður Bogi

Heildarfarþegafjöldi Icelandair í innanlands- og millilandaflugi á árinu er nú kominn yfir 1,3 milljónir og hefur farþegum því fjölgað um rétt tæplega 50% á milli ára. Þetta er meðal þess sem kemur fram í mánaðarlegum flutningatölum fyrir nóvembermánuð sem Icelandair Group birti í Kauphöll í dag.

Í tilkynningu Icelandair Group um málið segir að heildarfjöldi farþega í innanlands- og millilandaflugi í nóvember síðastliðnum hafi verið um 170.000, samanborið við um 13.000 farþega í nóvember 2020 og um 283.000 í nóvember 2019, síðasta heila rekstrarár fyrir heimsfaraldurinn. Heildarframboð í nóvembermánuði var um 63% af framboði sama mánaðar ársins 2019.

Þá voru farþegar í millilandaflugi um 151.000 samanborið við 7.000 í nóvember 2020. Farþegar til Íslands voru um 80.000 og frá landinu voru um 33.000. Tengifarþegar voru um 38.000 en hlutfall þeirra hefur nú aukist um tæp 80% á milli ára það sem af er ári. Þá var stundvísi í millilandaflugi um 75% samkvæmt tilkynningunni. 

Farþegar í innanlandsflugi voru um 19.000 samanborið við 6.000 í nóvember 2020 og 21.000 í nóvember 2019. „Farþegafjöldi í innanlandsflugi er þannig orðinn nánast sambærilegur við það sem hann var fyrir faraldur. Það sem af er ári hafa 78% fleiri farþegar flogið innanlands en á sama tímabili árið 2020,“ segir í tilkynningunni. 

Ánægjulegt að sjá þennan vöxt

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir í tilkynningunni að ánægjulegt sé að sjá þann vöxt sem hafi orðið í flugáætlun og starfsemi Icelandair Group á árinu. „Millilandaflug hefur aukist jafnt og þétt og innanlandsflugið er nú á svipuðum stað og fyrir faraldurinn. Þá höfum við séð töluverða aukningu í fraktflutningum og nú undir lok árs erum við að sinna spennandi verkefnum í leiguflugi.“

Hann bætir við að núverandi staða faraldursins hafi haft áhrif á bókanir til skemmri tíma. „Bókunarstaða er þó almennt sterk og við munum áfram nýta þann sveigjanleika sem við höfum til að laga okkur að aðstæðum hverju sinni. Starfsfólk félagsins hefur staðið sig með eindæmum vel, hvort sem litið er til þess að sækja ný verkefni eða sinna fyrirtaks þjónustu við viðskiptavini á tímum þar sem ferðalög hafa verið flókin,“ segir Bogi Nils að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK