Ólafía ráðin fjármálastjóri Deloitte

Deloitte er til húsa í Turninum í Kópavogi.
Deloitte er til húsa í Turninum í Kópavogi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ólafía Ingibjörg Þorvaldsdóttir viðskiptafræðingur hefur verið ráðin sem fjármálastjóri Deloitte á Íslandi.

Hún tekur við starfinu af Sunnu Dóru Einarsdóttur, meðeiganda Deloitte og sviðsstjóra viðskiptalausna, sem hefur gegnt því starfi undanfarin fimm ár. Sunna mun einbeita sér að hlutverkinu sem sviðsstjóri viðskiptalausna hjá félaginu, að því er segir í tilkynningu.

Ólafía hefur undanfarin ár starfað sem forstöðumaður reikningshalds Festar hf. og sem framkvæmdastjóri fjármála- og vörustýringar hjá Krónunni ehf. Þar áður starfaði hún sem deildarstjóri hjá Landsbankanum og dótturfélögum hans. Á árunum 1995 til 2005 starfaði Ólafía sem verkefnastjóri á endurskoðunarsviði Deloitte.

Ólafía Ingibjörg Þorvaldsdóttir.
Ólafía Ingibjörg Þorvaldsdóttir.

Ólafía er með cand.oecon-gráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskóla Íslands.

„Við erum mjög lánsöm með að fá Ólafíu aftur til Deloitte. Hún hefur víðtæka reynslu á fjölmörgum sviðum fjármála og þekkir vel alþjóðlegt rekstrarumhverfi okkar og skipulag sem mun nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu og sjálfvirknivæðingu á sviðinu,“ segir Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte.

„Sunna hefur gert frábæra hluti á fjármálasviðinu ásamt því að leiða Viðskiptalausnir og tekur Ólafía því við góðu búi. Sunna mun nú einbeita sér að þeim miklu vaxtartækifærum sem framundan eru hjá Viðskiptalausnum og aðstoða viðskiptavini okkar í að sjálfvirknivæða og umbreyta fjármálaferlum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK