Fyrsta rafmagnsflugvél Íslands

Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélagsins og starfsmaður hjá Icelandair, og Friðrik …
Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélagsins og starfsmaður hjá Icelandair, og Friðrik Pálsson, eigandi Hótel Rangár við nýju vélina. mbl.is/Árni Sæberg

Fyrsta rafmagnsflugvél Íslands hefur nú fengið flughæfisskírteini og mun senn hefja flugið, að því er fram kemur í sameiginlegri tilkynningu frá Icelandair, Isavia, Landsvirkjun, Hótel Rangá, Landsbankanum, Flugskólanum Geirfugli, Flugskóla Reykjavíkur og Flugakademíu Íslands sem standa að fyrstu rafmagnsflugvélinni á Íslandi.

Segir í tilkynningunni að um sé að ræða „mikilvæg tímamót í íslenskri flugsögu“

„Félagið Rafmagnsflug ehf. flutti vélina til landsins með það að markmiði að taka frumkvæði í orkuskiptum í flugi, þjálfa starfsfólk í þessari nýju tækni og kynna hana fyrir landsmönnum,“ segir í tilkynningunni. 

Flugvélin ber heitið TF-KWH. Hún er tveggja sæta af gerðinni Pipistrel og er framleidd í Slóveníu. Vélin er á stærð við þær vélar sem notaðar eru í flugkennslu hér á landi. 

Rafmagnsknúna vélin mynduð á Reykjavíkurflugvelli.
Rafmagnsknúna vélin mynduð á Reykjavíkurflugvelli. mbl.is/Árni Sæberg

Ómetanlegur velvilji 

„Með innflutningi hennar er stigið mikilvægt fyrsta skref í orkuskiptum í flugi. Fyrst um sinn er raunhæft að horfa til orkuskipta minni flugvéla og því næst í farþegaflugi innanlands. Til þess að gera orkuskipti möguleg er samstarf lykilaðila mikilvægt, svo sem flugfélaga, flugvalla og orkufyrirtækja,“ segir í tilkynningunni.

„Rafmagnsflug ehf. var upphaflega stofnað af Matthíasi Sveinbjörnssyni og Friðriki Pálssyni í árslok 2021 en þeir hafa unnið að því síðastliðin þrjú ár að fá rafmagnsflugvélina til landsins. Fjölmargir aðilar koma að verkefninu en hluthafar og bakhjarlar félagsins eru Icelandair, Isavia, Landsvirkjun, Hótel Rangá, Landsbankinn, Flugskólinn Geirfugl, Flugskóli Reykjavíkur, Flugakademía Íslands, ásamt Matthíasi, Friðriki og Herjólfi Guðbjartssyni. Þá er rétt að geta þess að Eimskip lagði félaginu lið með því að flytja vélina til landsins því að kostnaðarlausu og tryggingafélag flugvélarinnar Consello felldi niður iðgjöld. Sá velvilji, sem mætt hefur félaginu í öllum undirbúningi og innflutningi vélarinnar er ómetanlegur.“

Í tilkynningunni segir að Ísland sé  í einstakri stöðu til þess að vera í fararbroddi í heiminum hvað orkuskipti í flugi varðar.

„Vegna stuttra flugleiða innanlands, góðs aðgengis að umhverfisvænni raforku, auk þess sem lega landsins milli Evrópu og Norður-Ameríku getur til framtíðar skapað margvísleg tækifæri þegar kemur að orkuskiptum í millilandaflugi.

Þjálfun flugmanna mun hefjast á næstunni og í kjölfarið verður boðað til viðburðar þar sem fyrsta formlega flugið fer fram.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK