Katrín nýr formaður ÍMARK

Stjórn ÍMARK fyrir starfsárið 2022-2023.
Stjórn ÍMARK fyrir starfsárið 2022-2023.

Katrín M. Guðjónsdóttir hefur verið kjörin nýr formaður ÍMARK, og tekur við af Andra Má Kristinssyni sem hefur gegnt embættinu frá 2020 eftir að hafa setið í stjórn í þrjú ár. Auk Andra fara þau Edda Hermannsdóttir, Hildur Björk Hafsteinsdóttir og Árni Reynir Alfreðsson úr stjórn og Anna Fríða Gísladóttir, markaðsstjóri PLAY fer í barneignaleyfi.

Fjórir nýir stjórnarmenn voru kosnir í stjórn félagsins. Þau eru Arndís Huld Hákonardóttir, markaðsstjóri Bláa Lónsins, Daði Guðjónsson, sviðsstjóri markaðs- og sjálfbærnimála hjá Krónunni, Karen Ósk Gylfadóttir, sviðsstjóri markaðsmála og stafrænna lausna hjá Lyfju og Magnús Magnússon, markaðsstjóri Húsasmiðjunnar.

Þá eru sitja þau Guðlaugur Aðalsteinsson, Cirkusstjóri hjá CIRKUS auglýsingastofu, og Sigríður Theódóra, framkvæmdastjóri Brandenburg, áfram í stjórn.

ÍMARK eru samtök markaðsfólks á Íslandi var stofnað árið 1986. Tilgangur samtakanna er m.a. að auka veg og virðingu markaðsmála hérlendis, stuðla að auknum skilningi að mikilvægi þeirra ásamt því að vera leiðandi afl, vettvangur þekkingar á sviði markaðsmála á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK