Umhverfisdagur atvinnulífsins 2022 verður haldinn miðvikudaginn 5. október í Hörpu Norðurljósum kl. 09:00-10.30 undir yfirskriftinni Auðlind vex af auðlind. Hægt er að fylgjast með í beinu streymi hér á mbl.is.
Dagurinn er árviss viðburður og að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu, að því er fram kemur í tilkynningu.
Dagskránni lýkur með afhendingu Umhverfisverðlauna atvinnulífsins en verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum. Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verðlaun fyrir umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar fyrir framtak ársins. Venju samkvæmt afhendir forseti Íslands Umhverfisverðlaun atvinnulífsins.
Í tengslum við Umhverfisdag atvinnulífsins er allur októbermánuður tileinkaður umhverfismálum og þá sér í lagi hringrásarhagkerfinu. Hringrásarhagkerfið snýst um það hvernig nýta má hráefni á sem skilvirkastan hátt og fyrirbyggja t.a.m. sóun og losun gróðurhúsalofttegunda með breyttum áherslum í vöru- og þjónustuhönnun. Rannsóknir sýna að búast má við að hringrásarhagkerfið hafi jákvæð áhrif á efnahagslífið og landsframleiðslu. Einnig má búast við aukinni samkeppnishæfni hagkerfisins.
Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku.
Setning
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Ávarp
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðherra.
Í átt að kolefnishlutleysi
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi.
Pallborð:
Anna Þórdís Rafnsdóttir, verkefnastjóri sjálfbærni hjá Kviku og varaformaður IcelandSIF
Björk Kristjánsdóttir, forstjóri Carbon Recycling International (CRI)
Höfum við tíma til að bíða lengur?
Berglind Ósk Ólafsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni hjá BYKO
Ný viðmið í sjávarútvegi
Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf.
Hringrás auðlinda – magn er málið
Dagný Jónsdóttir, forstöðumaður Auðlindagarðs HS Orku.
Pallborð
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins
Þorsteinn Kári Jónsson, forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla hjá Marel
Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja fiskeldis
Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2022
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaun fyrir Umhverfisfyrirtæki ársins og Umhverfisframtak ársins.