Jón nýr framkvæmdastjóri hjá Reitum

Kringlan er á meðal eigna fasteignafélagsins Reita.
Kringlan er á meðal eigna fasteignafélagsins Reita. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jón Kolbeinn Guðjónsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra eignaumsýslusviðs Reita, en hann hefur frá árinu 2013 starfað hjá Isavia, síðast sem deildarstjóri verkfræði- og framkvæmdadeildar fyrirtækisins. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Reitum.

Jón Kolbeinn er byggingartæknifræðingur frá háskólanum í Aarhus og tók síðan M.Sc. í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2013. Frá 2013 hefur Jón Kolbeinn starfað hjá Isavia, fyrst sem verkefnastjóri fjárfestingaverkefna, síðan sem verkefnastjóri viðskiptaþróunar og frá árinu 2019 hefur Jón Kolbeinn gegnt starfi deildarstjóra verkfræði- og framkvæmdadeildar fyrirtækisins.

Segir í tilkynningunni að Jón Kolbeinn hafi hjá Isavia komið að flóknum framkvæmdaverkefnum, aðallega á Keflavíkurflugvelli, samningum við verktaka, samskiptum við leigutaka og rekstraraðila og komið að innleiðingu á verkferlum og verklagi. Þá hafi hann víðtæka reynslu af opinberum innkaupum. Jón Kolbeinn mun mæta til starfa hjá Reitum í upphafi ársins 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK