Krónan opnuð á Akureyri

Ný verslun Krónunnar er á Tryggvabraut 8 ár Akureyri, ekki …
Ný verslun Krónunnar er á Tryggvabraut 8 ár Akureyri, ekki langt frá Glerártorgi. Ljósmynd/Krónan

Krónan opnar í dag nýja verslun á Tryggvabraut 8 á Akureyri. Verslunarrýmið er alls um 2.000 fermetrar að stærð og mun fjöldi vörutegunda í nýju versluninni hlaupa á þúsundum, segir í tilkynningu. Húsnæði Krónunnar á Tryggvabraut er nýtt en fyrsta skóflustunga var tekin 15. júní 2021.

Auk Krónunnar er í versluninni útibú frá veitingastöðunum RUB23 og Wok On.

Verslunarstjóri Krónunnar á Akureyri er Bjarki Kristjánsson og starfsmenn verða hátt í 50. Í tilkynningu er tekið fram að næstu daga verði fjöldi opnunartilboða fyrir viðskiptavini.

Í tilkynningunni er m.a. haft eftir Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar, að verslunin sé með þeim glæsilegri í keðjunni. Spennandi verði að sjá hvernig Eyfirðingar taki í stafrænar lausnir Krónunnar við sjálfsafgreiðslu með vörurnar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK