Anna Regína nýr forstjóri Coca-Cola á Íslandi

Anna Regína Björnsdóttir, nýr forstjóri Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi …
Anna Regína Björnsdóttir, nýr forstjóri Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi (Coca-Cola á Íslandi). Ljósmynd/Aðsend

Anna Regína Björnsdóttir hefur tekið við starfi forstjóra Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi (Coca-Cola á Íslandi). Anna Regína er með M.Sc í iðnaðarverkfræði og hefur starfað hjá fyrirtækinu í rúmlega áratug í ýmsum stjórnunarstörfum, eða frá árinu 2012. Anna Regína tekur við af Einari Snorra Magnússyni sem hefur gegn starfinu frá 2018.

Í tilkynningu vegna breytinganna kemur fram að Anna Regína hafi síðustu þrjú ár starfað sem framkvæmdastjóri sölusviðs en þar áður var hún framkvæmdastjóri fjármálasviðs. 

Einar Snorri hefur gegnt starfi forstjóra Coca-Cola á Íslandi frá árinu 2018 en hann óskaði nýverið eftir að fá að láta af störfum að því er segir í tilkynningunni. Einar hóf störf hjá Vífilfelli 2001 og hefur gegnt ýmsum stjórnunarstörfum frá þeim tíma.

Einar Snorri Magnússon hættir hjá Coca-cola eftir 20 ára starf …
Einar Snorri Magnússon hættir hjá Coca-cola eftir 20 ára starf hjá fyrirtækinu Ljósmynd/Aðsend

Haft er eftir Önnu Regínu að hún sé þakklát fyrir að vera treyst fyrir að leiða fyrirtækið inn í nýja tíma. „Coca-Cola á Íslandi er leiðandi fyrirtæki er varðar styrkleika vörumerkja, þjónustu við viðskiptavini, sjálfbærnimál og mannauðsmál. Fyrirtækið byggir á sterkum grunni og yfir 80 ára sögu á íslenska drykkjarvörumarkaðinum. Það er mikill styrkur í vörumerkjunum okkar, bæði þeim alþjóðlegu sem eru með þeim stærstu á heimsmælikvarða en eins í íslenskum vörumerkjum, t.d. íslenskum gæðabjór sem bruggaður er hjá Víking Brugghús, verksmiðju okkar á Akureyri. Coca-Cola á Íslandi býr yfir öflugum mannauði og ég er þakklát fyrir að vera treyst fyrir því að leiða okkar frábæra starfsfólk inn í nýja tíma og takast á við spennandi verkefni í samstarfi við viðskiptavini okkar.“

Jafnframt er haft eftir Einari Snorra að þakklæti sé honum efst í huga til samstarfsfólks og viðskiptavina. Hann mun vera nýjum forstjóra innan handar næstu vikurnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK