Samþykkja yfirtöku á Credit Suisse

Framkvæmdastjórn ESB hefur nú úrskurðað að samruni bankanna tveggja dragi …
Framkvæmdastjórn ESB hefur nú úrskurðað að samruni bankanna tveggja dragi ekki úr samkeppni á mörkuðum evrópska efnahagssvæðisins. AFP

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti kaup svissneska bankans UBS á Credit Suisse í dag.

UBS ákvað í mars að kaupa Credit Suisse á rúm­lega þrjá millj­arða Banda­ríkja­dala, eða rúm­lega 420 millj­arða króna.

Cred­it Suis­se hef­ur verið sagður á barmi gjaldþrots og krafðist UBS því mik­ils af­slátt­ar af kaup­verðinu. Báðir bankarnir eru frá Sviss en svissneska ríkið hefur ábyrgst skuld­ir Cred­it Suisse að ákveðnu marki til þess að lág­marka áhættu UBS. Þar að auki hljóta báðir bank­ar lána­fyr­ir­greiðslur upp á 110 millj­arða Banda­ríkja­dala.

Framkvæmdastjórn ESB hefur nú úrskurðað að samruninn dragi ekki úr samkeppni á mörkuðum þar sem starfsemi bankanna skarast á evrópska efnahagssvæðinu.

Alain Berset, for­seti Sviss, hefur einnig lagt áherslu á mik­il­vægi þess­ar­ar yf­ir­töku fyr­ir sviss­neskt efna­hags­kerfi í heild.

Cred­it Suis­se er einn af þeim 30 bönk­um sem hafa verið flokkaðir sem „kerf­is­lega mik­il­vægir“ en margt bend­ir til þess að fjár­fest­ar hafi lengi vitað að hann væri veik­ur hlekk­ur í þeirri keðju.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK