Creditinfo styður við Jafnvægisvogina

Ásta Dís Óladóttir, formaður stjórnar Jafnvægisvogar FKA, og Hrefna Ösp …
Ásta Dís Óladóttir, formaður stjórnar Jafnvægisvogar FKA, og Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, undirrita samstarfssamning. Ljósmynd/Silla Páls

Creditinfo hefur undirritað samstarfssamning við Félag kvenna í atvinnulífinu um stuðning við Jafnvægisvogina. Samningurinn var undirritaður af Hrefnu Ösp Sigfinnsdóttur, framkvæmdastjóra Creditinfo á íslandi og Ástu Dís Óladóttur, formann stjórnar Jafnvægisvogar FKA.

Í tilkynningu kemur fram að Creditinfo mun styðja við Jafnvægisvogina með gögnum til framsetningar í Mælaborði Jafnvægisvogarinnar en mælaborðinu er m.a. ætlað að sýna með skýrum hætti kynjahlutföll íslenskra stjórnenda. Er gögnunum ætlað að styðja við vegferð Jafnvægisvogarinnar um að vera hreyfiafl til að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi.

„Það er mikill fengur fyrir jafnvægisvogina að fá Creditinfo um borð, þar sem tilgangurinn með voginni er að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar í íslensku viðskiptalífi og gera niðurstöður mælinga sýnilegar. Creditinfo mun koma með gögn inn í endurbætt mælaborð. Með gögnum er ákvarðanataka alltaf auðveldari, og því er það von okkar að þetta muni ýta enn frekar undir að  stjórnendur í íslensku viðskiptalífi kjósi að taka þá ákvörðun að auka á jafnrétti innan sinna raða,“ segir Ásta Dís Óladóttir, formaður stjórnar Jafnvægisvogar FKA, í tilkynningunni.

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, segist ánægð með að geta stutt við Jafnvægisvogina.

„Því miður hafa kynjahlutföll stjórnenda í íslensku atvinnulífi breyst hægt og því skiptir miklu máli að hafa tímanleg og rétt gögn til að virkja atvinnulífið til raunverulegra breytinga. Creditinfo hefur átt í góðu samstarfi við Félag kvenna í atvinnulífinu í gegnum árin og það gleður okkur að geta eflt það samstarf enn frekar í gegnum þetta öfluga mælitæki sem Jafnvægisvogin er,“ segir Hrefna Ösp.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK