Kröftugur hagvöxtur

Mikill viðsnúningur er á hagvexti fyrsta ársfjórðungs þessa árs miðað …
Mikill viðsnúningur er á hagvexti fyrsta ársfjórðungs þessa árs miðað við árið 2022 mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hagvöxtur mældist 7% á fyrsta fjórðungi þessa árs. Er þetta nokkur viðsnúningur frá fjórða ársfjórðungi 2022 þegar hagvöxtur mældist 3,1%, að því er fram kemur í Hagsjá Landsbankans

Utanríkisviðskipti og einkaneysla hækka hagvöxt

Fram kemur að utanríkisviðskipti hafi ýtt undir hagvöxt en útflutningur hafi aukist mun meira en innflutningur. Jókst útflutningur um 10,8% miðað við fyrsta ársfjórðung 2022 en innflutningur um 3,7%.

Skýrist vöxtur útflutningsins af aukningu í þjónustuútflutningi sem má rekja til aukinnar útfluttrar ferðaþjónustu.

Vöruinnflutningur dróst saman um 0,2% frá fyrsta fjórðungi seinasta árs en þjónustuinnflutningur jókst um 12,4% frá sama ársfjórðungi. Það er ferðalagaliðurinn sem vegur þyngst en Íslendingar ferðast mun meira fyrsta árfjórðung þessa árs en árið áður, að því er kemur fram í Hagsjá bankans. 

Aukning einkaneyslu

Þá jókst einkaneysla um 4,9% milli ára. Aukninguna má líklegast rekja til mikilla launahækkana sem samið var um í upphafi árs og lok síðasta árs. Þá getur verið að einhverjir hafi enn sparnað frá tímum faraldursins til þess að ganga á.

Fjármunamyndun dróst saman um 0,1% milli ára vegna samdráttar í íbúðafjárfestingu. Samdrátturinn ætti að skýrast af hærri vöxtum og skorti á starfsfólki í byggingargeiranum en hann nemur 14,4% milli ára, kemur fram í Hagsjánni.

Kaupmáttur stendur í stað

Vísitala neysluverðs og vísitala launa hafa hækkað álíka mikið síðustu tólf mánuði og stendur kaupmáttur því nokkurn veginn í stað. Vaxtahækkanir ættu að draga úr neyslugetu og er því óvíst hvort einkaneysla muni halda áfram að aukast. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK