NOVIS mótmælir starfsleyfissviptingu

NOVIS mótmælir ákvörðun seðlabanka Slóvakíu.
NOVIS mótmælir ákvörðun seðlabanka Slóvakíu. AFP

Slóvakíska líftryggingafélagið NOVIS, sem hefur starfsemi hér á landi í gegnum vátryggingamiðlunina Tryggingar og ráðgjöf, mótmælir harðlega starfsleyfissviptingu af hálfu slóvakíska seðlabankans.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Leita réttar síns

Í tilkynningunni segir að ákvörðun seðlabankans sé röng, byggð á ófullnægjandi mati og að lagabókstafnum sé ekki rétt beitt. NOVIS undrast það að ekki hafi verið tekið neitt tillit til þeirra fjölda gagna sem félagið skilaði til seðlabankans.

Ætlar NOVIS í framhaldinu að fá ákvörðun seðlabankans hnekkt fyrir slóvakískum dómstólum. NOVIS segir sig hafa undir höndum gögn sem sanni ósanngjarna málsmeðferð seðlabankans og hefur félagið afhent þau ríkissaksóknara í Slóvakíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK