Heimkaup valið sem einkasöluaðili

Sigurður Pálsson í miðið ásamt lykilstjórnendum Vital Source þegar lögð …
Sigurður Pálsson í miðið ásamt lykilstjórnendum Vital Source þegar lögð voru drög að samstarfssamningi fyrirtækjanna í apríl sl.

Netverslunin Heimkaup hefur náð samkomulagi við rafbókavettvanginn ( e.platform ) Vital Source um einkasölu á Íslandi fyrir allt rafrænt efni sem úthlutað er til þeirra frá erlendum bókaútgefendum.

Í tilkynningu frá Heimkaupum segir að Vital Source, sem sé stærsti aðili á þessu sviði í heimi, bjóði upp á 1,1 milljón titla og fari titlum ört fjölgandi.

Sigurður Pálsson verkefnastjóri hjá Heimkaupum segir að fyrirtækið sé stolt af samkomulaginu og viðurkenningunni sem í því felist.

Sigurður segir að samningurinn þýði að helsti samkeppnisaðili Heimkaupa á sviði rafrænna námsbóka, Bóksala stúdenta, hafi nú ekki lengur aðgang að rafrænu námsefni sem fer í gegnum Vital Source.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK