RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
Hafðu samband

Andlátstilkynningar

Helgarþjónusta – Andlátstilkynningar í mánudagsblað eingöngu bókaðar á mbl.is
Opnunartími fyrir netbókanir er: föstudagur kl.17.00 – sunnudags kl. 14.00. Þessi þjónusta er einnig opin á hátíðisdögum.

Tilkynningar sem birtast eiga í mánudagsblaði er hægt að bóka á slóðinni: http://mbl.is/mogginn/andlat/form/

Einungis er hægt að greiða tilkynningar á netinu með kreditkorti

Skil tilkynninga

Morgunblaðið birtir andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar alla útgáfudagana, frá mánudegi til laugardags.
Tilkynningum er hægt að skila á eftirfarandi hátt:

Afhenda handrit 
Tekið er á móti tilkynningunum í auglýsingadeild á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Hádegismóum 2 í Reykjavík.

Hringja í síma 569 1111

Hægt er að lesa texta tilkynningar í síma og er textinn þá sleginn inn samstundis og síðan lesinn upp aftur fyrir auglýsanda.

Senda á netfangið augl@mbl.is 
Hægt er að senda texta tilkynningar í tölvupósti, á netfangið augl@mbl.is. Mynd af hinum látna fylgi sem viðhengi.

Senda fax 569 1110

Hægt er að senda texta tilkynningar í bréfasíma, vélritaðan eða handskrifaðan með læsilegri skrift.
Með birtingarbeiðninni þurfa að fylgja upplýsingar um kennitölu greiðanda, nafn, heimilisfang og símanúmer.

Bóka á netinu í mánudagsblað utan afgreiðslutíma auglýsingadeildar

Athugið að einungis er hægt að bóka dánarauglýsingar á netinu á föstudögum frá kl. 18 og til kl. 14 á sunnudögum. Auglýsingin birtist á mánudegi þar á eftir.
Hægt er að bóka dánarauglýsingar á netinu á helgidögum (Jól, páskar osfvr.) sem birtast þá á fyrsta útgáfudegi þar á eftir.

Ef andlátstilkynningu á að fylgja mynd er mikilvægt að myndin sé í góðum gæðum því ekki er unnt að vinna myndina sérstaklega ef bókað er með þessum hætti.
Opnunartími auglýsingadeildar er virka daga frá kl. 8 -17 og laugardaga frá kl. 8-13

Bóka dánarauglýsingu í mánudagsblað

Skilafrestur tilkynninga:

BIRTINGARDAGUR TILKYNNING BERIST FYRIR
Þriðjudagur-laugardagur kl. 15:30 daginn fyrir birtingardag
mánudagur kl. 15:30 á föstudegi

Form
Form tilkynningar er staðlað en hæðin ræðst af texta og mynd. Ef óskað er eftir að hafa mynd í tilkynningu er hægt að skila henni sem venjulegri ljósmynd, skyggnu eða á stafrænu sniði. Myndin er notuð bæði fyrir tilkynningar og í minningargreinar. Þegar mynd hefur birst er hægt að sækja hana í afgreiðslu Morgunblaðsins.

Tilkynningar er hægt að greiða með símgreiðslu, í tölvupósti eða símbréfinu. Gefa þarf upp kortanúmer, gildistíma og nafn korthafa. Veittur er 3% staðgreiðsluafsláttur þegar tilkynning er staðgreidd eða þegar greitt er með greiðslukorti.

Einnig er hægt að fá sendan gíróseðil og greiða tilkynninguna samkvæmt honum með 20 daga gjaldfresti frá útgáfudegi seðilsins. Gefa þarf þá upp kennitölu greiðanda.