Netauglýsingar
Verðskrá
Auglýsingastærðir
Flash-auglýsingar
Skil á auglýsingum til mbl.is
Öllum auglýsingum og slóðum (URLs) þarf að skila á netaugl@mbl.is. Netfang sölufulltrúa þarf að setja í cc línuna. Eftirfarandi upplýsingar eiga að fylgja með um leið og auglýsingunni er skilað. Birting auglýsingar gæti tafist ef vantar einhverjar umbeðnar upplýsingar.
- Hvenær á birting að hefjast
- Hvenær á birtingunni að ljúka
- Hvar á auglýsingin að birtast
- Auglýsinga skrár (sem aðskildar skrár, jpg, gif eða flash)
- Vefslóð sem á að vera á bakvið borðann
- Bendils-texti (ef óskað er)
- Sérstakar upplýsingar um hvernig keyra, fletta og/eða skipta eigi skrám á tímabilinu
Skilatímar
Staðlaðar auglýsingar:
Einn virkan dag þarf til að skoða og undirbúa birtingar á stöðluðum gif/jpg auglýsingum. Sem dæmi má nefna að birtingum/breytingum sem eiga að byrja á mánudegi þarf að skila í síðasta lagi fyrir miðnætti á fimmtudegi.
Flóknari auglýsingar:
Þrjá virka daga þarf til að skoða og undirbúa birtingar á flóknari auglýsingaskrám, flash/pop-up, html og dhtml. Sem dæmi má nefna að birtingum/breytingum auglýsinga sem eiga að byrja á mánudegi þarf að skila í síðasta lagi fyrir miðnætti á þriðjudag. Mælt er með sjö dögum fyrir auglýsendur sem eru að auglýsa á þennan hátt í fyrsta sinn.
Skrár er hægt að senda sem viðhengi eða á vef/ftp síðu með staðsetningu og fyrirmælum um hvernig nálgast megi þær.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi auglýsingaskil á mbl.is sendu tölvupóst á netaugl@mbl.is
Skrár sem standast ekki reglur um þyngd, stærð og/eða gerð eru endursendar til lagfæringar. Það gæti orðið til þess að seinka birtingu auglýsingar.




