Spurt og svarað
Á þessari síðu er svarað algengustu spurningum varðandi Blað dagsins á netinu, innsendingu greina til Morgunblaðsins og fleiri tengd atriði.
Ég finn ekki Sunnudagsmoggann.
Sunnudagsmogginn birtist á laugardögum og er settur inn í Blað dagsins á sama tíma og laugardagsblaðið.
Til að skoða blaðið þarf að gera eftirfarandi: Tengjast Blaði dagsins. Smella
í framhaldi á hnappinn "Sérblöð" Í glugganum sem þá birtist er m. a. hægt að
velja Sunnudagsmoggann til að lesa. Ef lesa á blaðið deginum á eftir eða síðar
er eftirfarandi gert: Smella á hnappinn "Dagatal" og velja dagsetningu
viðkomandi laugardags. Smella í framhaldi á hnappinn "Sérblöð" Í glugganum sem
þá birtist er m. a. hægt að velja Sunnudagsmoggann til að lesa.




