Þú ert hér: mbl.is > Morgunblaðið

Árvakur hf., útgáfufélag Morgunblaðsins, lætur sig umhverfið varða. Stjórnendur og starfsmenn félagsins eru vakandi fyrir nýjum úrlausnum á öllum sviðum sem leiða til þess að starfsemi blaðsins hafi jákvæð áhrif og valdi sem minnstri röskun í umhverfinu.

Umhverfisstefna

Árvakur hf., útgáfufélag Morgunblaðsins, ætlar að: - Stuðla að framgangi umhverfismála á Íslandi - Vinna stöðugt að umbótum í umhverfisstjórnun, virkja starfsmenn til þátttöku og uppfylla að lágmarki þær kröfur um umhverfismál sem gerðar eru til félagsins í lögum og reglugerðum - Velja birgja og þjónustuaðila með tilliti til frammistöðu þeirra í umhverfismálum, svo framarlega sem verð og gæði leyfa - Taka mið af umhverfisáhrifum í framkvæmdum og nýtingu tækni - Styðja áfram skógrækt og landgræðslu á Íslandi

Umhverfisviðurkenning umhverfisráðuneytisins
Árvakur hlaut umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins 26. apríl 2003. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra afhenti Haraldi Sveinssyni, formanni stjórnar Árvakurs, viðurkenninguna við athöfn í Morgunblaðshúsinu. Prentsmiðja Morgunblaðsins fékk viðurkenninguna áður fyrir árið 1995. Siv sagði stjórnendur Árvakurs hafa um árabil verið í fararbroddi í umhverfismálum.

Staðfestingarskjal vegna ISO 14001
6. júlí 2002 afhenti Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra Haraldi Sveinssyni, stjórnarformanni Árvakurs hf., staðfestingu á því að fyrirtækið uppfyllir alþjóðlega umhverfisstaðalinn ISO 14001. Árvakur var þriðja íslenska fyrirtækið sem hlaut þessa staðfestingu.